140. löggjafarþing — 97. fundur, 10. maí 2012.
vinnustaðanámssjóður.
765. mál
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ágæta ræðu og ágætt mál. Ég vildi ekki fara í andsvar því að ég hef ekkert á móti þessu máli. Ég fagna því og ég tel að þetta sé einmitt sá þáttur í menntakerfi Íslands — þeir eru reyndar fleiri — þar sem sérstakra úrbóta er þörf.