143. löggjafarþing — 97. fundur, 28. apr. 2014.
stuðningur við dæmda menn erlendis utan fangelsis.
384. mál
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir þessa spurningu. Ég mun fara héðan með það veganesti að skoða þetta mál betur og kanna hvort þetta sé gat í okkar góða velferðarkerfi sem hægt er að stoppa í með einföldum hætti. Ég mun þá hrinda því í framkvæmd.