144. löggjafarþing — 97. fundur, 28. apr. 2015.
ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.
688. mál
Hæstv. fjármálaráðherra er ekki í húsinu. Forseta var kunnugt um að hæstv. fjármálaráðherra yrði ekki viðstaddur þessa umræðu. Engu að síður ákvað forseti að setja málið á dagskrá. Hæstv. fjármálaráðherra var viðstaddur umræðuna allan liðlangan daginn í gær og í ljósi þess að ekki voru margir á mælendaskrá taldi forseti ekki óeðlilegt að umræðunni yrði haldið áfram án viðveru hæstv. fjármálaráðherra.