151. löggjafarþing — 97. fundur,  18. maí 2021.

matvælaframleiðslu- og menntunarklasi á Árborgarsvæðinu.

672. mál
[21:35]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg):

Herra forseti. Þessi tillaga til þingsályktunar um matvælaframleiðslu- og menntunarklasa á Árborgarsvæðinu er flutt af þingmönnum Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Kolbeinn Óttarsson Proppé var fyrsti flutningsmaður ásamt okkur fimm öðrum þingmönnum, mér, Ara Trausta Guðmundssyni, Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur, Lilju Rafneyju Magnúsdóttur, Ólafi Þór Gunnarssyni og Steinunni Þóru Árnadóttur.

Ég tók að mér að hafa framsögu um málið og byrja á því að gera grein fyrir um hvað þessi tillaga fjallar. Hún fjallar einfaldlega um það að Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að setja á fót starfshóp sem vinni tillögur um hvernig best verði komið á fót klasa um innlenda matvælaframleiðslu og menntun henni tengda í Árborg. Í starfshópnum eigi sæti fulltrúar Bændasamtaka Íslands, Sambands garðyrkjubænda, Garðyrkjuskólans að Reykjum, Landgræðslunnar og Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, auk viðeigandi ráðuneyta. Samráð verði haft við Landbúnaðarháskóla Íslands, Fjölbrautaskóla Suðurlands, Háskólafélag Suðurlands, Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Háskólann á Akureyri, Háskólann á Hólum, Fisktækniskólann í Grindavík, Samtök atvinnulífsins, Alþýðusamband Íslands og aðra sem að málinu koma. Alþingi verði gefin skýrsla um málið fyrir 1. desember 2021.

Ég ætla að styðjast í framhaldinu við greinargerðina.

Heimsfaraldur og loftslagsvá hafa sýnt fram á nauðsyn þess að hvert samfélag sé sem sjálfbærast. Því skiptir máli að nýta sem best þau tækifæri sem hér bjóðast varðandi innlenda matvælaframleiðslu með sjálfbærni að leiðarljósi og einnig sem lið í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Í því samhengi er mikilvægt að stuðla að og styrkja starfsemi í geiranum og efla menntun sem næst þeim svæðum þar sem framleiðslan fer fram.

Matvælastefna fyrir Ísland til 2030 var samþykkt í desember 2020 og snýst m.a. um að nýta tækifæri innlendrar matvælaframleiðslu til fulls. Stefnt er að því að matvælaframleiðsla verði kolefnishlutlaus með því að draga úr losun og auka bindingu. Er þetta einnig mikilvægt þar sem eftirspurn eftir heilnæmum matvælum sem framleidd eru með litlu kolefnisspori hefur farið vaxandi. Stefnt er að því að fólki gefist kostur á að fá allar upplýsingar um matvælin á einfaldan hátt, hvar þau eru framleidd, hvernig framleiðsluhættirnir eru og loftslagsáhrifin af þeim.

Þessu til viðbótar má ekki vanmeta þann þátt sem mælt er sterklega með sem öflugustum í innlendri matvælaframleiðslu en það er hringrásarhagkerfið. Það veldur því m.a. að aðföng verða auðveldari, flutningslínur skemmri en ella, endurnýting lífræns efnis stærra hlutfall við framleiðslu hverrar vörueiningar o.s.frv. og kolefnisfótsporið minna en ella.

Herra forseti. Suðurland er blómlegt matvælaframleiðsluhérað og þar fer stór hluti grænmetisframleiðslu landsins fram enda aðstæður sérstaklega góðar hvað jarðhita varðar og stutt er á helstu markaði. Þar er kornrækt mikil og tækifæri til að efla hana eru mýmörg. Mjólkurframleiðsla er öflug á svæðinu enda landkostir miklir hvað hana varðar. Það má nefna nýjar greinar eins og landeldi sem ætti í raun flokka sem landbúnað.

Það má ekki gleyma í þessu sambandi tillögu verkefnisstjórnar ráðuneytis landbúnaðar og hæstv. landbúnaðarráðherra um landbúnaðarstefnu og það má segja sem svo að þetta þingmál hljóti að ríma vel við hana. Ætli stjórnvöld að ná fram markmiðum sínum í matvælastefnu er hins vegar ljóst að efla þarf vísindi, þróun og menntun í matvælaframleiðslu. Á Suðurlandi er að finna ýmsa þá starfsemi sem horfa þarf til þegar kemur að menntun í matvælarækt. Garðyrkjuskólinn að Reykjum hefur verið vagga íslenskrar garðyrkju áratugum saman og nú er hafið samstarf við Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi um kennslu. Einboðið er að nýta aðstöðu og búnað að Reykjum í tengslum við matvælaframleiðsluklasa. Í Gunnarsholti eru stundaðar umfangsmiklar rannsóknir og ýmiss konar ræktun sem nauðsynlegt er að verði hluti af samstarfi um klasann þegar hann er orðinn til. Þegar horft er til landeldis má sjá fyrir sér samstarf við Fisktækniskólann í Grindavík en Suðurstrandarvegur og auknar tækniframfarir bjóða upp á mikla möguleika til framtíðarþróunar í landeldi, bæði fræðum og framkvæmd, frá Suðurlandi til Suðurnesja. Þá má nefna að nú þegar er á svæðinu ýmiss konar starfsemi tengd vísindum í faginu. Matvælastofnun hefur t.d. höfuðstöðvar sínar á Selfossi. Ég vil einnig nefna bætta hafnaraðstöðu, bæði í Þorlákshöfn og Vestmannaeyjum, sem skiptir einnig máli þegar kemur að útflutningi matvæla, bæði úr fiskeldi og veiðum svo eitthvað sé nefnt.

Herra forseti. Það er hugsanlegt að nokkurt samstarf geti átt sér stað um landbúnaðarklasann sem var stofnaður árið 2014 að frumkvæði Bændasamtakanna og hefur það að markmiði að gæta sameiginlegra hagsmuna og kynna þá fjölþættu starfsemi sem tengist landbúnaði, deila þekkingu, stuðla að framþróun og nýsköpun, stuðla að upplýstri umræðu um markaðssetningu landbúnaðarafurða og matvæla og stuðla að viðburðum sem styðja við aukna verðmætasköpun á öllum stigum matvælaframleiðslu og annarrar framleiðslu innan landbúnaðarins. Starfshópurinn skoði það sérstaklega en Bændasamtökin munu eiga sæti í honum.

Nýsamþykkt matvælastefna fyrir Ísland er byggð á fimm lykilþáttum; verðmætasköpun, neytendum, ásýnd og öryggi, umhverfi og lýðheilsu. Þá er mikið lagt upp úr mikilvægi matvælaöryggis og fæðuöryggis og hringrásarhagkerfisins sem ég minntist á áðan. Stefnunni er ætlað að vera leiðbeinandi við ákvarðanatöku til að stuðla að aukinni verðmætasköpun í matvælaframleiðslu hér á landi, tryggja matvælaöryggi og auka velferð fólks í sátt við umhverfi og náttúru og þar með sem sjálfbærustum landbúnaði. Sett eru fram markmið um hverju skuli hafa verið náð fyrir 2030 og meðal þeirra er að verðmætasköpun hafi verið aukin með bættum framleiðsluaðferðum, vöru- og þjónustuþróun og nýsköpun, að þekking, hæfni og áhugi á matvælum hafi verið efld á öllum námsstigum, að fræðsla til neytenda um matvæli og tengsl mataræðis við lýðheilsu hafi verið aukin, rannsóknir og þróun verði öflugur bakhjarl matvælaframleiðslu og samstarf stofnananna öflugt. Þetta eru sem sagt markmið sem voru sett fram í matvælastefnu og skal vera náð 2030, þ.e. eftir tæpan áratug.

Til þess að þessi markmið náist er nauðsynlegt að efla rannsóknir og menntun á þessu sviði og matvælaframleiðsluklasi er mikilvægt tæki til þess. Efla þarf það góða starf sem þegar er unnið víða. Svo hægt sé að efla kornrækt til manneldis, sem er ákaflega mikilvægt til að styrkja fæðuöryggi landsins, þarf að stunda yrkjaprófanir með reglubundnum hætti. Sú starfsemi getur ekki sótt í nýsköpunarsjóði þar sem nýnæmi yrkjaprófanna er takmarkað og ætti að teljast til grunnrannsókna sem væru þá fjármagnaðar sem slíkar af fjárlögum ríkisins.

Því er skemmst frá að segja að Árborgarsvæðið hentar gríðarlega vel fyrir klasann út frá landkostum og þeirri starfsemi sem þegar er í nágrenninu. Þá má benda á að mikilvægt er að auka hlutfall háskólamenntaðra á Suðurlandi og háskólanám í heimabyggð er besta leiðin til þess. Íbúum á svæðinu hefur fjölgað umtalsvert og allir innviðir eru til staðar til öflugrar starfsemi matvælaframleiðsluklasa sem hér er verið að leggja til.

Það má nefna að lokum að það eru ýmsir fleiri fletir á eldri matvælaframleiðslu á Suðurlandi og á Suðurnesjum og Suðausturlandi og í raun á landinu öllu. Ég læt mér nægja að minna á það átak sem þegar er hafið við að gera frárennsliskerfi landsmanna fyllilega boðleg frammi fyrir öllum þáttum matvælaframleiðslu í landinu. Það er ekki lítið mikilvægur þáttur í hreinleikaímynd íslenskra landbúnaðarafurða.

Herra forseti. Ég læt þetta nægja sem framsögu um þessa þörfu og framsæknu þingsályktun okkar sex þingmanna Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs.