140. löggjafarþing — 98. fundur, 11. maí 2012.
innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta.
763. mál
Virðulegur forseti. Samkvæmt ýmsum lögfræðiálitum og yfirlýsingum er almenna afstaðan sú að hér sé ekki um ríkisábyrgð að ræða í skilningi ríkisábyrgðarlaga. Það er það sjónarmið sem mikilvægast er að halda til haga í þessari umræðu.