144. löggjafarþing — 98. fundur, 29. apr. 2015.
störf þingsins.
Forseti vill af þessu tilefni segja að hann tekur undir að það er ekki alveg vansalaust að við skulum ekki vera búin að ljúka þessum siðareglum. Unnið hefur verið talsvert í því og forseti væntir þess og hefur trú á því að okkur auðnist að ljúka þeirri vinnu alveg á næstunni og mun, að minnsta kosti hvað hann sjálfan áhrærir, leggja sig fram um það.