150. löggjafarþing — 98. fundur,  6. maí 2020.

störf þingsins.

[15:02]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg):

Forseti. Mig langar að gera að umræðuefni undir liðnum um störf þingsins, kannski öllu heldur um umræður á Alþingi, að athyglisvert hefur verið að fylgjast með umræðu tvo síðustu daga, annars vegar um loftslagsmál á mánudaginn og hins vegar borgarlínu í gær. Ég verð að segja, forseti, að það var mjög upplýsandi að sjá og heyra sjónarmið hv. þingmanna Miðflokksins í báðum þessum málum. Ég velti margoft fyrir mér undir þeim umræðum undan hvaða steini Miðflokkurinn hafi skriðið. Meðan heimurinn tekst á við loftslagsvá, tekur höndum saman þvert á öll landamæri og alla geira samfélags, veit Miðflokkurinn betur. Á meðan öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu taka höndum saman, setjast niður og semja við ríkisvaldið um verkefni sem þau telja öllsömul gríðarlega mikilvæg, ekki síst í baráttunni gegn loftslagsvánni, veit Miðflokkurinn einn betur. (Gripið fram í: Já.) Gögn, líkön og staðreyndir — þetta skiptir Miðflokkinn engu máli, enda var athyglisvert að heyra margar fullyrðingar í umræðunum þar sem því var lýst yfir að menn vissu ekki hvað borgarlína væri eftir allan þennan tíma.

Forseti. Ég hvet fólk til að vera ekki að taka mín orð fyrir þessu. Það þarf ekki að treysta því sem ég segi, heldur (Gripið fram í: Það er heldur ekki hægt.) fylgjast með því sem er geymt af þessari umræðu á vef Alþingis. Ég hvet fólk til að kynna sér sjálft þá forneskju sem þar kemur fram. (Gripið fram í: Hvaða þvæla er þetta?)