150. löggjafarþing — 98. fundur,  6. maí 2020.

störf þingsins.

[15:20]
Horfa

Þorsteinn Sæmundsson (M):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Kolbeini Óttarssyni Proppé fyrir að vekja athygli á sérstöðu Miðflokksins þegar kemur að þeim málum sem hér voru rædd í gær og ég tek undir hvatningu hans til landsmanna til að kynna sér innihald þeirrar umræðu. Ég þakka honum kærlega fyrir þetta.

Ég ætlaði hins vegar að ræða annað í dag, herra forseti, ég ætlaði að ræða eina stétt manna sem virðist fara verr út úr ástandinu sem skapast hefur út af Covid-19 en flestar aðrar og það eru leigubílstjórar. Svo virðist sem leigubílstjórar séu nánast lagðir í einelti af stjórnsýslunni þessa dagana. Þeir fá ekki hlutabætur, þeim er veitt heimild til að sækja um atvinnuleysisbætur gegn því að þeir skili inn atvinnuleyfi sínu. Atvinnuleyfið verður þar með söluvara fyrir aðra. Við sömu kringumstæður nú er búið að boða af hálfu Samgöngustofu að ný leyfi verði gefin út í þessu ástandi þegar stéttin sem um ræðir er með u.þ.b. 5–10% innkomu miðað við það sem verið hefur í eðlilegu ástandi.

Ofan í kaupið fá leigubílstjórar ekki undanþágu frá 2 metra reglunni, eins og t.d. strætisvagnar fá. Nú ætla ég að vekja athygli á því að mjög margir leigubílar eru þannig útbúnir og af þeirri stærð að menn hafa þegar innréttað þá þannig að 2 metra reglan er í heiðri höfð.

Mér þykir með miklum ólíkindum að svona sé gengið fram gegn einni stétt og ég skora á viðkomandi yfirvöld, Vinnumálastofnun, samgönguyfirvöld og samgönguráðherra, að bæta hér úr hið fyrsta.