Varamaður tekur þingsæti.
Forseti (Halldór Blöndal):
Borist hefur svohljóðandi bréf frá Jóni Kristjánssyni, 4. þm. Norðaust., dagsett 29. mars 2005:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa og þess að 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í Norðaust. er forfallaður, að 2. varamaður listans, Katrín Ásgrímsdóttir, garðyrkjubóndi, Kaldá, Austur-Héraði, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.“
Þá hefur borist bréf frá 1. varaþingmanni Framsóknarflokksins í Norðaust., Þórarni Sveinssyni, þar sem hann tilkynnir um forföll sín.
Kjörbréf Katrínar Ásgrímsdóttur hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hún hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni.
[Katrín Ásgrímsdóttir, 4. þm. Norðaust., undirritaði drengskaparheit um að halda stjórnarskrána.]