132. löggjafarþing — 99. fundur, 5. apr. 2006.
Ríkisútvarpið hf.
401. mál
Svo háttar til, í tilefni orða hv. þingmanns um það hvað forseti hyggist fyrir, að hér í þinghúsinu hafa í alla nótt verið þingmenn sem bíða þess að komast á mælendaskrá, m.a. hv. þm. Pétur H. Blöndal sem forseti hugðist gefa orðið að lokinni ræðu hv. þm. Marðar Árnasonar.