132. löggjafarþing — 99. fundur, 5. apr. 2006.
Ríkisútvarpið hf.
401. mál
Í tilefni orða hv. þm. Ögmundar Jónassonar vill forseti árétta að forseti hefur oftar en einu sinni úr þessum forsetastól í nótt látið vita að forseti hygðist halda áfram með mælendaskrána og að hv. þm. Pétur H. Blöndal er samkvæmt viðvistarskrá búinn að vera í húsi síðan í gær. Það hefur legið fyrir öllum þingmönnum, kannski ekki hv. þingmanni í ræðustól en öðrum hv. þingmönnum stjórnarandstöðunnar sem hér hafa verið.