132. löggjafarþing — 99. fundur, 5. apr. 2006.
Ríkisútvarpið hf.
401. mál
Forseti vill beina því til hv. þm. Jóns Bjarnasonar að gæta hófs í orðavali, (JBjarn: Það á að gæta hófs í störfum.) en í tilefni orða hv. þingmanns vill forseti taka það fram að enn eru 11 þingmenn á mælendaskrá og hv. þm. Pétur H. Blöndal hefur verið á mælendaskrá frá því snemma í dag tilbúinn að taka þátt í umræðunni um leið og hv. þm. Ögmundur Jónasson lyki sinni ræðu.