139. löggjafarþing — 99. fundur, 24. mars 2011.
fundarstjórn.
Frú forseti. Ég tel það mjög til þess fallið að auka virðingu Alþingis að við fylgjum fundarstjórn forseta og þeirri dagskrá sem liggur fyrir og öllum hefur verið kunn síðan í gær. Skýrsla forsætisráðherra er á dagskrá eftir nokkrar mínútur og svona upphlaup er ekki til þess að auka virðingu Alþingis.