139. löggjafarþing — 99. fundur, 24. mars 2011.
skipun stjórnlagaráðs.
549. mál
Virðulegi forseti. Ég hef samúð með þeim sjónarmiðum sem fram koma í breytingartillögu hv. þm. Þórs Saaris og fleiri. Sambærileg sjónarmið koma hins vegar fram í áliti meiri hluta allsherjarnefndar sem ég tel nægja. Ég greiði því ekki atkvæði.