149. löggjafarþing — 99. fundur,  3. maí 2019.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

512. mál
[12:31]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Virðulegi forseti. „Ég er plastpokamaður og plastpoka- syng ég blús“, söng Megas hér um árið, og ég tek undir það. Ég hef lagt hér fram tillögur um bann við notkun á plastpokum. Þetta mál er skref í þá átt og er framfaramál. Að sjálfsögðu tek ég undir með hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni um að þetta er aðeins fyrsta skrefið í því að draga úr þeirri stórkostlegu vá fyrir jörðina og mannkynið sem ofnotkun á plasti er. Ég hvet því þingheim til að styðja þetta mál.