Alþingiskosningar 1931
Gullbringu- og Kjósarsýslu var skipt í tvö kjördæmi með lögum nr. 20/1928. Hafnarfjörður varð eftir þetta sérstakt einmenningskjördæmi og Gullbringu- og Kjósarsýsla varð einmenningskjördæmi.
Forsætisráðherra, Tryggvi Þórhallsson, rauf þing 14. apríl 1931 í þann mund er umræður um vantrauststillögu á ríkisstjórn hans voru að hefjast. Ástæða vantrauststillögunnar var deila um breytingu á kjördæmaskipan sem Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur höfðu náð samkomulagi um en Framsóknarflokkurinn, flokkur forsætisráðherrans, var henni andvígur.
Fjórir stjórnmálaflokkar, Alþýðuflokkur, Framsóknarflokkur, Kommúnistaflokkur og Sjálfstæðisflokkur, buðu fram við þingkosningarnar, en enginn þeirra bauð fram í öllum 27 kjördæmum landsins. Einnig voru frambjóðendur utan flokka í kjöri.
Um kosningarnar | |||
Kjördagur | 12. júní 1931 | ||
Mannfjöldi | 108.629 | ||
Kjósendur á kjörskrá | 50.614 | ||
Hlutfall kosningarbærra af heildarmannfjölda | 46,4% | ||
Greidd atkvæði | 39.605 | ||
Kosningaþátttaka | 78,2% | ||
Hlutfall kjósenda af heildarmannfjölda | 36,5% | ||
Kosningaþátttaka karla | 85,0% | ||
Kosningaþátttaka kvenna | 72,1% | ||
Kjördæmakjörnir þingmenn | 36 | ||
Landskjörnir þingmenn | 6 | ||
Heildarfjöldi þingmanna | 42 | ||
Kosningaúrslit – kjördæmakjörnir þingmenn | |||
Gild atkvæði | 38.544 | ||
Sjálfstæðisflokkur | 43,8% | 12 þingmenn | |
Framsóknarflokkur | 35,9% | 21 þingmaður | |
Alþýðuflokkur |
16,1% |
3 þingmenn |
|
Kommúnistaflokkur | 3,0% | ||
Utan flokka | 1,2% |
Kjördæmi og þingmenn 1931 | |
Reykjavík | 2 |
Gullbringu- og Kjósarsýsla | 1 |
Hafnarfjörður | 1 |
Árnessýsla | 2 |
Rangárvallasýsla | 2 |
Vestmannaeyjar | 1 |
Vestur-Skaftafellssýsla | 1 |
Austur-Skaftafellssýsla | 1 |
Suður-Múlasýsla | 2 |
Seyðisfjarðarkaupstaður | 1 |
Norður-Múlasýsla | 2 |
Norður-Þingeyjarsýsla | 1 |
Suður-Þingeyjarsýsla | 1 |
Eyjafjarðarsýsla | 2 |
Akureyri | 1 |
Skagafjarðarsýsla | 2 |
Austur-Húnavatnssýsla | 1 |
Vestur-Húnavatnssýsla | 1 |
Strandasýsla | 1 |
Norður-Ísafjarðarsýsla | 1 |
Ísafjarðarkaupstaður | 1 |
Vestur-Ísafjarðarsýsla | 1 |
Barðastrandarsýsla | 1 |
Dalasýsla | 1 |
Snæfellsnes- og Hnappadalssýsla | 1 |
Mýrasýsla | 1 |
Borgarfjarðarsýsla | 1 |