Alþingiskosningar 1995
Sú breyting hafði verið gerð á kosningalögum, með lögum nr. 9/1995, að flökkusætið sem færst gat milli kjördæma var fest í Reykjavíkurkjördæmi og einnig var eitt þingsæti flutt úr Norðurlandskjördæmi eystra til Reykjaneskjördæmis. Með þessu var brugðist við fólksfjölgun á suðvesturhorni landsins sem hafði leitt til þess að misvægi atkvæða hafði aukist frá því að fyrst var kosið eftir gildandi kosningatilhögun árið 1987.
Þingsætatala kjördæmanna var birt með auglýsingu dóms- og kirkjumálaráðuneytisins nr. 126/1995.
Sex stjórnmálasamtök buðu fram í öllum kjördæmum: Alþýðubandalag og óháðir, Alþýðuflokkur – Jafnaðarmannaflokkur Íslands, Framsóknarflokkur, Samtök um kvennalista, Sjálfstæðisflokkur og Þjóðvaki – hreyfing fólksins. Þeim tókst öllum að fá kjörna fulltrúa á Alþingi.
Náttúrulagaflokkur Íslands bauð fram í Reykjavíkurkjördæmi, Reykjaneskjördæmi, Vesturlandskjördæmi og Suðurlandskjördæmi.
Kristileg stjórnmálahreyfing bauð fram í Reykjavíkurkjördæmi og Reykjaneskjördæmi.
Vestfjarðalistinn bauð fram í Vestfjarðakjördæmi og Suðurlandslistinn bauð aðeins fram í Suðurlandskjördæmi.
Um kosningarnar | ||
Kjördagur | 8. apríl 1995 | |
Mannfjöldi | 266.978 | |
Kjósendur á kjörskrá | 191.973 | |
Hlutfall kosningarbærra af heildarmannfjölda | 71,8% | |
Greidd atkvæði | 167.751 | |
Kosningaþátttaka | 87,4% | |
Hlutfall kjósenda af heildarmannfjölda | 62,8% | |
Kosningaþátttaka karla | 87,3% | |
Kosningaþátttaka kvenna | 87,5% | |
Kjördæmakjörnir þingmenn | 50 | |
Jöfnunarþingmenn | 13 | |
Heildarfjöldi þingmanna | 63 | |
Kosningaúrslit | ||
Gild atkvæði | 165.043 | |
Sjálfstæðisflokkur | 37,1% | 25 þingmenn |
Framsóknarflokkur | 23,3% | 15 þingmenn |
Alþýðubandalag og óháðir | 14,3% | 9 þingmenn |
Alþýðuflokkur | 11,4% | 7 þingmenn |
Þjóðvaki | 7,1% | 4 þingmenn |
Kvennalisti | 4,9% | 3 þingmenn |
Suðurlandslistinn | 0,7% | |
Náttúrulagaflokkur | 0,6% | |
Vestfjarðalistinn | 0,4% | |
Kristileg stjórnmálahreyfing | 0,2% | |
Jöfnunarþingmenn | ||
Sjálfstæðisflokkur | 4 | |
Þjóðvaki | 3 | |
Alþýðubandalag og óháðir | 2 |
|
Alþýðuflokkur | 2 |
|
Kvennalisti | 2 |
Kjördæmi og þingmenn 1995 | |
Reykjavíkurkjördæmi | 19 þingmenn |
Reykjaneskjördæmi | 12 þingmenn |
Vesturlandskjördæmi | 5 þingmenn |
Vestfjarðakjördæmi | 5 þingmenn |
Norðurlandskjördæmi vestra | 5 þingmenn |
Norðurlandskjördæmi eystra | 6 þingmenn |
Austurlandskjördæmi | 5 þingmenn |
Suðurlandskjördæmi | 6 þingmenn |
Þingmenn að loknum alþingiskosningum 8. apríl 1995 | |
Reykjavíkurkjördæmi | |
Kjördæmakjörnir þingmenn | |
1. Davíð Oddsson | Sjálfstæðisflokkur |
2. Friðrik Sophusson | Sjálfstæðisflokkur |
3. Björn Bjarnason | Sjálfstæðisflokkur |
4. Geir H. Haarde | Sjálfstæðisflokkur |
5. Sólveig Pétursdóttir | Sjálfstæðisflokkur |
6. Lára Margrét Ragnarsdóttir | Sjálfstæðisflokkur |
7. Finnur Ingólfsson | Framsóknarflokkur |
8. Svavar Gestsson | Alþýðubandalag |
9. Jón Baldvin Hannibalsson | Alþýðuflokkur |
10. Guðmundur Hallvarðsson | Sjálfstæðisflokkur |
11. Ólafur Örn Haraldsson | Framsóknarflokkur |
12. Bryndís Hlöðversdóttir | Alþýðubandalag og óháðir |
13. Jóhanna Sigurðardóttir | Þjóðvaki, hreyfing fólksins |
14. Kristín Ástgeirsdóttir | Samtök um kvennalista |
15. Össur Skarphéðinsson | Alþýðuflokkur |
Jöfnunarþingmenn | |
16. Pétur H. Blöndal | Sjálfstæðisflokkur |
17. Ögmundur Jónasson | Alþýðubandalag og óháðir |
18. Ásta R. Jóhannesdóttir | Þjóðvaki, hreyfing fólksins |
19. Guðný Guðbjörnsdóttir | Samtök um kvennalista |
Reykjaneskjördæmi | |
Kjördæmakjörnir þingmenn | |
1. Ólafur G. Einarsson | Sjálfstæðisflokkur |
2. Árni M. Mathiesen | Sjálfstæðisflokkur |
3. Sigríður A. Þórðardóttir | Sjálfstæðisflokkur |
4. Siv Friðleifsdóttir | Framsóknarflokkur |
5. Rannveig Guðmundsdóttir | Alþýðuflokkur |
6. Árni R. Árnason | Sjálfstæðisflokkur |
7. Hjálmar Árnason | Framsóknarflokkur |
8. Ólafur Ragnar Grímsson | Alþýðubandalag og óháðir |
9. Guðmundur Árni Stefánsson | |
Jöfnunarþingmenn | |
10. Kristján Pálsson | Sjálfstæðisflokkur |
11. Ágúst Einarsson | Þjóðvaki, hreyfing fólksins |
12. Kristín Halldórsdóttir | Samtök um kvennalista |
Vesturlandskjördæmi | |
Kjördæmakjörnir þingmenn | |
1. Ingibjörg Pálmadóttir | Framsóknarflokkur |
2. Sturla Böðvarsson | Sjálfstæðisflokkur |
3. Magnús Stefánsson | Framsóknarflokkur |
4. Guðjón Guðmundsson | Sjálfstæðisflokkur |
Jöfnunarþingmaður | |
5. Gísli S. Einarsson | Alþýðuflokkur |
Vestfjarðakjördæmi | |
Kjördæmakjörnir þingmenn | |
1. Einar K. Guðfinnsson | Sjálfstæðisflokkur |
2. Gunnlaugur M. Sigmundsson | Framsóknarflokkur |
3. Einar Oddur Kristjánsson | Sjálfstæðisflokkur |
4. Sighvatur Björgvinsson | Alþýðuflokkur |
Jöfnunarþingmenn | |
5. Kristinn H. Gunnarsson | Alþýðubandalag og óháðir |
Norðurlandskjördæmi vestra | |
Kjördæmakjörnir þingmenn | |
1. Páll Pétursson | Framsóknarflokkur |
2. Hjálmar Jónsson | Sjálfstæðisflokkur |
3. Stefán Guðmundsson | Framsóknarflokkur |
4. Ragnar Arnalds | Alþýðubandalag og óháðir |
Jöfnunarþingmaður | |
5. Vilhjálmur Egilsson | Sjálfstæðisflokkur |
Norðurlandskjördæmi eystra | |
Kjördæmakjörnir þingmenn | |
1. Guðmundur Bjarnason | Framsóknarflokkur |
2. Halldór Blöndal | Sjálfstæðisflokkur |
3. Valgerður Sverrisdóttir | Framsóknarflokkur |
4. Steingrímur J. Sigfússon | Alþýðubandalag og óháðir |
5. Tómas Ingi Olrich | Sjálfstæðisflokkur |
Jöfnunarþingmaður | |
6. Svanfríður Jónasdóttir | Þjóðvaki, hreyfing fólksins |
Austurlandskjördæmi | |
Kjördæmakjörnir þingmenn | |
1. Halldór Ásgrímsson | Framsóknarflokkur |
2. Jón Kristjánsson | Framsóknarflokkur |
3. Egill Jónsson | Sjálfstæðisflokkur |
4. Hjörleifur Guttormsson | Alþýðubandalag og óháðir |
Jöfnunarþingmaður | |
5. Arnbjörg Sveinsdóttir | Sjálfstæðisflokkur |
Suðurlandskjördæmi | |
Kjördæmakjörnir þingmenn | |
1. Þorsteinn Pálsson | Sjálfstæðisflokkur |
2. Guðni Ágústsson | Framsóknarflokkur |
3. Árni Johnsen | Sjálfstæðisflokkur |
4. Ísólfur Gylfi Pálmason | Framsóknarflokkur |
5. Margrét Frímannsdóttir | Alþýðubandalag og óháðir |
Jöfnunarþingmaður | |
6. Lúðvík Bergvinsson | Alþýðuflokkur |