Skammstafanir þingmanna

Í upphafi hvers kjörtímabils eru þingmönnum gefnar skammstafanir sem eru hafðar sem stystar en þó þannig að ekki sé hægt að lesa nema nafn eins þingmanns úr hverri skammstöfun. Notaðir eru fyrstu stafir úr nafni og föðurnafni og ef með þarf miðnafni.

Skammstöfun er aldrei breytt á miðju þingi jafnvel þó varamaður komi inn sem ófyrirséð var og hægt sé að lesa nafn hans úr skammstöfun annars þingmanns, en skammstöfun þingmannsins er þá væntanlega breytt á næsta þingi.

Skammstafanir þingmanna eru notaðar í Alþingistíðindum í atkvæðagreiðslum og í skjalalistum þar sem getið er flutningsmanna og stundum á þingskjölum.

Nafn þingmanns Skammstöfun
Áki Jakobsson ÁkJ
Ásgeir Ásgeirsson ÁÁ
Ásmundur Sigurðsson ÁS
Barði Guðmundsson BG
Bernharð Stefánsson BSt
Bjarni Ásgeirsson
Bjarni Benediktsson BBen
Brynjólfur Bjarnason BrB
Einar Olgeirsson EOl
Eiríkur Einarsson EE
Emil Jónsson EmJ
Eysteinn Jónsson EystJ
Finnur Jónsson FJ
Garðar Þorsteinsson
Gísli Guðmundsson GíslG
Gísli Jónsson GíslJ
Gísli Sveinsson GSv
Guðmundur Í. Guðmundsson GÍG
Gunnar Thoroddsen GTh
Haraldur Guðmundsson HG
Helgi Jónasson HelgJ
Hermann Jónasson HermJ
Ingólfur Jónsson IngJ
Ingvar Pálmason IngP
Jakob Möller JakM
Jóhann Þ. Jósefsson JJós
Jón Pálmason JPálm
Jón Sigurðsson JS
Jónas Jónsson frá Hriflu JJ
Jörundur Brynjólfsson JörB
Kristinn E. Andrésson KA
Lárus Jóhannesson LJóh
Lúðvík Jósepsson LJós
Magnús Jónsson MJ
Ólafur Thors ÓTh
Páll Hermannsson PHerm
Páll Zóphóníasson PZ
Páll Þorsteinsson
Pétur Magnússon PM
Pétur Ottesen PO
Sigfús Sigurhjartarson SigfS
Sigurður Bjarnason SB
Sigurður Guðnason SG
Sigurður E. Hlíðar SEH
Sigurður Kristjánsson SK
Sigurður S. Thoroddsen STh
Sigurður Þórðarson
Sigurjón Á. Ólafsson SÁÓ
Skúli Guðmundsson SkG
Stefán Jóh. Stefánsson StJSt
Steingrímur Aðalsteinsson StgrA
Sveinbjörn Högnason SvbH
Þorsteinn Þorsteinsson ÞÞ
Þóroddur Guðmundsson ÞG