88. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 23. júní 2020 kl. 10:05


Mætt:

Páll Magnússon (PállM) formaður, kl. 10:05
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 1. varaformaður, kl. 10:05
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) 2. varaformaður, kl. 10:05
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 10:05
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 10:05
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 10:05
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 10:05
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 10:05
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 10:05

Nefndarritari: Elisabeth Patriarca Kruger

Anna Kolbrún Árnadóttir tók þátt í fundinum með fjarfundabúnaði, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl., framlengd á þingfundum 14. apríl og 30. apríl sl. og endurnýjuð á þingfundi 8. júní sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:05
Fundargerð 87. fundar var samþykkt.

2) 708. mál - staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl. Kl. 10:05
Framsögumaður málsins, Birgir Ármannsson, kynnti drög að nefndaráliti. Nefndin fjallaði um málið.

3) Önnur mál Kl. 10:30
Nefndin ræddi málefnasvið nefndarinnar.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:35