67. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn þriðjudaginn 11. maí 2021
kl. 10:35
Mætt:
Páll Magnússon (PállM) formaður, kl. 10:35Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 1. varaformaður, kl. 10:35
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) 2. varaformaður, kl. 10:35
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 10:35
Olga Margrét Cilia (OC), kl. 10:35
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 10:35
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 10:35
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 10:35
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir boðaði forföll.
Birgir Ármannsson vék af fundi kl. 10:55.
Nefndarritari: Elisabeth Patriarca Kruger
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 10:35
Fundargerð 66. fundar var samþykkt.
2) 602. mál - útlendingar og atvinnuréttindi útlendinga Kl. 10:35
Nefndin fékk á sinn fund Trausta Fannar Valsson dósent við lagadeild Háskóla Íslands sem gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.
3) 715. mál - breyting á ýmsum lögum á málefnasviði mennta- og menningarmála Kl. 11:00
Nefndin fékk á sinn fund Valgerði Rún Benediktsdóttur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga sem gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.
Kl. 11:10
Nefndin fékk einnig á sinn fund Vigdísi Evu Líndal og Gunnar Inga Ágústsson frá Persónuvernd. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
Þá fékk nefndin á sinn fund Ragnar Þór Pétursson og Önnu Maríu Gunnarsdóttur frá Kennarasambandi Íslands. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
4) Önnur mál Kl. 11:05
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 11:35