8. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 16. október 2014
kl. 08:35
Mættir:
Páll Valur Björnsson (PVB) 1. varaformaður, kl. 08:35Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 2. varaformaður, kl. 08:35
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 08:35
Elsa Lára Arnardóttir (ELA), kl. 08:35
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 08:35
Jóhanna María Sigmundsdóttir (JMS), kl. 08:35
Oddgeir Ágúst Ottesen (OddO) fyrir Unni Brá Konráðsdóttur (UBK), kl. 08:40
Guðbjartur Hannesson var fjarverandi vegna annarra þingstarfa.
Vilhjálmur Árnason var fjarverandi.
Nefndarritari: Kristín Einarsdóttir
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 08:35
1.varaformaður kynnti fundargerðir 5-7 og voru þær samþykktar án athugasemda.
2) 243. mál - Rauði krossinn á Íslandi og merki Rauða krossins, hálfmánans og kristalsins Kl. 08:40
Borin var upp sú tillaga að Líneik Anna Sævarsdóttir yrði framsögumaður. Það var samþykkt.
3) Kynning á þingmálaskrá dómsmálaráðherra. Kl. 08:55
Á fund nefndarinnar komu Ragnhildur Hjaltadóttir, Bryndís Helgadóttir og Þórunn J. Hafstein. Fóru þær yfir þingmálaskrá dómsmálaráðherra og svöruðu spurningum nefndarmanna.
4) 214. mál - framhaldsskólar Kl. 09:30
Borin var upp sú tillaga að Unnur Brá Konráðsdóttir yrði framsögumaður. Það var samþykkt.
5) Önnur mál Kl. 09:35
Fleira var ekki rætt.
Fundi slitið kl. 09:35