37. fundur
atvinnuveganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 20. febrúar 2020
kl. 09:00
Mætt:
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 09:00Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (AFE) 1. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:00
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 09:00
Valgerður Gunnarsdóttir (ValG), kl. 09:00
Sigurður Páll Jónsson og Halla Signý Kristjánsdóttir boðuðu forföll.
Jón Þór Ólafsson og Rósa Björk Brynjólfsdóttir voru fjarverandi.
Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:05
Fundargerðir 35. og 36. fundar voru samþykktar.
2) Nýsköpunarstefna fyrir Ísland Kl. 09:05
Á fund nefndarinnar mættu Guðmundur Hafsteinsson og Þórlindur Kjartansson. Fjölluðu þeir um Nýsköpunarstefnu fyrir Ísland og svöruðu spurningum nefndarmanna.
3) 265. mál - kolefnismerking á kjötvörur og garðyrkjuafurðir til manneldis Kl. 10:15
Dagskrárlið frestað.
4) Önnur mál Kl. 10:15
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 10:15