33. fundur
atvinnuveganefndar á 140. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 16. febrúar 2012 kl. 08:48


Mættir:

Kristján L. Möller (KLM) formaður, kl. 08:48
Einar K. Guðfinnsson (EKG), kl. 08:48
Jón Gunnarsson (JónG), kl. 08:59
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 08:48
Ólína Þorvarðardóttir (ÓÞ), kl. 09:26
Sigurður Ingi Jóhannsson (SIJ), kl. 08:48

Nefndarritari: Benedikt Sveinbj. Benediktsson

Bókað:

1) Fundargerð. Kl. 09:46
Fyrir fundinn voru lögð drög að fundargerð síðasta fundar nefndarinnar. Gerðardrögin voru samþykkt með breytingu.

2) Laxeldi á Vestfjörðum. Kl. 08:49
Á fund nefndarinnar komu Höskuldur Steinarsson, Arnór Björnsson og Jónatan Þórðarson frá Fjarðlaxi ehf. Gestirnir kynntu nefndinni laxeldi á vegum Fjarðalax ehf. á Vestfjörðum og fyrirætlanir fyrirtækisins til framtíðar litið. Að því loknu svöruðu gestirnir spurningum nefndarmanna.

3) 7. mál - efling græna hagkerfisins á Íslandi Kl. 09:45
Málið var ekki rætt á fundi nefndarinnar.

4) 385. mál - stefna um beina erlenda fjárfestingu Kl. 09:45
Málið var ekki rætt á fundi nefndarinnar.

5) Önnur mál. Kl. 09:46
ÞSa og BVG voru fjarverandi vegna annarra funda.
MSch var fjarverandi.
Fleira var ekki rætt á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 09:46