62. fundur
atvinnuveganefndar á 140. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 10. maí 2012 kl. 08:38


Mættir:

Kristján L. Möller (KLM) formaður, kl. 08:51
Björn Valur Gíslason (BVG), kl. 08:38
Einar K. Guðfinnsson (EKG), kl. 08:38
Jón Gunnarsson (JónG), kl. 08:44
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 08:38
Ólína Þorvarðardóttir (ÓÞ), kl. 08:56
Sigmundur Ernir Rúnarsson (SER), kl. 08:38
Sigurður Ingi Jóhannsson (SIJ), kl. 08:46
Þór Saari (ÞSa), kl. 08:38

Nefndarritari: Benedikt Sveinbj. Benediktsson

Bókað:

1) Fundargerð síðasta fundar. Kl. 10:25
Fyrir fundinn voru lögð drög að fundargerð síðasta fundar nefndarinnar. Gerðadrögin voru samþykkt.

2) 657. mál - stjórn fiskveiða Kl. 08:38
Á fund nefndarinnar komu Kristján Freyr Helgason, Hrefna M. Karlsdóttir og Jóhann Guðmundsson frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu. Gestirnir kynntu nefndinni einstök ákvæði þingmálsins og svöruðu spurningum nefndarinnar að því loknu.

3) Önnur mál. Kl. 10:25
EKG yfirgaf fundinn kl. 10:05 vegna annarra þingstarfa en kom til fundarins á ný undir lok hans.
Fleira var ekki rætt á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 10:25