79. fundur
atvinnuveganefndar á 140. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 4. júní 2012 kl. 09:24


Mættir:

Kristján L. Möller (KLM) formaður, kl. 09:24
Einar K. Guðfinnsson (EKG), kl. 09:24
Jón Gunnarsson (JónG), kl. 09:24
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 10:22
Ólína Þorvarðardóttir (ÓÞ), kl. 09:24
Sigmundur Ernir Rúnarsson (SER), kl. 09:24
Sigurður Ingi Jóhannsson (SIJ), kl. 09:28
Þór Saari (ÞSa), kl. 09:24

Nefndarritari: Benedikt Sveinbj. Benediktsson

Bókað:

1) 657. mál - stjórn fiskveiða Kl. 09:24
Á fund nefndarinnar komu Daði Már Kristófersson og Jóhann Guðmundsson og Kristján Freyr frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu. Daði hélt áfram þar sem frá var horfið á síðasta fundi og kynnti nefndinni mat á áhrifum samþykktar breytingartillagna sem BVG hafði kynnt nefndinni og svaraði spurningum nefndarmanna að þeim loknum. Ráðuneytismenn kynntu nefndinni hugmynd að tillögu til breytingar og svöruðu spurningum nefndarmanna að því loknu.


2) Önnur mál. Kl. 10:23
Fyrir fundinn voru lögð drög að fundargerð síðasta fundar nefndarinnar. Gerðardrögin voru samþykkt.
BVG var fjarverandi vegna tímasetningar flugs frá Akureyri.
LRM var sein á fund nefndarinnar vegna tímasetninga flugs frá Ísafirði.
Fleira var ekki rætt á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 10:30