19. fundur
atvinnuveganefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 13. nóvember 2014
kl. 09:00
Mættir:
Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 09:00Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) 1. varaformaður, kl. 09:00
Haraldur Benediktsson (HarB) 2. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:00
Björt Ólafsdóttir (BjÓ), kl. 09:00
Kristján L. Möller (KLM), kl. 09:00
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 09:00
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 09:00
Þorsteinn Sæmundsson og Jón Þór Ólafsson voru fjarverandi.
Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir
Bókað:
1) Fundargerð. Kl. 09:00
Dagskrárliðnum var frestað.
2) 244. mál - áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða Kl. 09:00
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund og Gústaf Adolf Skúlason frá Samorku og Magnús Jóhannsson og Sigurð Guðjónsson frá Veiðimálastofnun.
3) Önnur mál. Kl. 10:25
Ákveðið var að gera orðalagsbreytingu á lokamálsgrein í máli 16, hagnýting internetsins og réttindavernd netnotenda, sem þegar hafði verið afgreitt frá nefndinni.
Fundi slitið kl. 10:25