75. fundur
atvinnuveganefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 2. júní 2015
kl. 10:30
Mættir:
Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 10:30Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) 1. varaformaður, kl. 10:30
Haraldur Benediktsson (HarB) 2. varaformaður, kl. 10:30
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 10:30
Eldar Ástþórsson (EldÁ), kl. 10:30
Kristján L. Möller (KLM), kl. 10:30
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 10:30
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 10:30
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 10:30
Jón Þór Ólafsson var fjarverandi.
ÁsF vék af fundi kl. 11.50.
KLM og ÞorS véku af fundi kl. 12.25 vegna fundar í forsætisnefnd.
Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir
Bókað:
1) Fundargerð. Kl. 10:30
Fundargerðir 60., 67. og 73. fundar voru samþykktar.
2) Uppbygging innviða á Bakka í Norðurþingi. Kl. 10:30
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Ragnhildi Hjaltadóttur og Sigurberg Björnsson frá innanríkisráðuneyti og Hrein Haraldsson frá Vegagerðinni.
3) 704. mál - veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald Kl. 11:40
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Brynhildi Pálmarsdóttur frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.
4) 775. mál - áætlun um meðferð og ráðstöfun aflamagns sem dregið er frá heildarafla Kl. 12:10
Nefndin hóf umfjöllun sína um málið og fékk á sinn fund Jóhann Guðmundsson og Hinrik Greipsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.
5) 694. mál - framleiðsla, verðlagning og sala búvöru o.fl. Kl. 12:45
Ekki var fjallað um málið.
6) 643. mál - innflutningur dýra Kl. 12:45
Ekki var fjallað um málið.
7) Önnur mál. Kl. 12:45
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 12:45