27. fundur
atvinnuveganefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 10. mars 2016 kl. 09:05


Mættir:

Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 09:05
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) 1. varaformaður, kl. 09:05
Haraldur Benediktsson (HarB) 2. varaformaður, kl. 09:05
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:05
Björt Ólafsdóttir (BjÓ), kl. 09:05
Kristján L. Möller (KLM), kl. 09:05
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 09:05
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 09:05

Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:05
Fundargerð 26. fundar var samþykkt.

2) 372. mál - stefna um nýfjárfestingar Kl. 09:05
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og ræddi um nefndarálit. Tillagan var afgreidd frá nefndinni af meiri hluta hennar og rituðu eftirtaldi undir nefndarálit með breytingartillögu: JónG, HarB, ÁsF, KLM, PJP, ÞórE.

3) Frumvarp nefndar um hitaveitur Kl. 10:05
Formaður kynnti drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar.

4) Frumvarp nefndar um tengingu við dreifikerfi raforku. Kl. 10:15
HarB kynnti frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum sem stefnt er að að nefndin flytji. Ákveðið að ræða frekar á næsta fundi.

5) Önnur mál Kl. 10:20
Ákveðið var að senda 28. mál til umsagnar, frumvarp til laga um leiðsögumenn ferðamanna.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:20