35. fundur
atvinnuveganefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 25. apríl 2016
kl. 15:00
Mættir:
Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 15:00Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) 1. varaformaður, kl. 15:00
Haraldur Benediktsson (HarB) 2. varaformaður, kl. 15:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 15:00
Björt Ólafsdóttir (BjÓ), kl. 15:00
Kristján L. Möller (KLM), kl. 15:30
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 15:10
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 15:25
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 15:00
Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir
Bókað:
1) 545. mál - matvæli, slátrun og eftirlit með fóðri Kl. 15:10
Málið var afgreitt frá nefndinni með breytingartillögu. Undir nefndarálit rita: JónG, LRM, HarB, ÁsF, BjÓ, KLM, PJP, ÞorS, ÞórE.
KLM og ÞorS voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en mættu síðar á fundinn. Rituðu þeir því undir nefndarálitið með heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis og voru ekki hreyfð andmæli við því.
2) 639. mál - raforkulög Kl. 15:15

3) 648. mál - niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar Kl. 15:20
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið.
4) 457. mál - veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald Kl. 15:25
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið.
5) Önnur mál Kl. 15:40
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 15:40