79. fundur
atvinnuveganefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 4. október 2016 kl. 09:00


Mættir:

Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) 1. varaformaður, kl. 10:30
Haraldur Benediktsson (HarB) 2. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:00
Björt Ólafsdóttir (BjÓ), kl. 09:00
Kristján L. Möller (KLM), kl. 09:00
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 09:00
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 09:00
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 09:00

Jón Gunnarsson og Þorsteinn Sæmundsson voru fjarverandi.

SSv vék af fundi kl. 10.30.
LRM var á fundinum í síma frá kl. 10.30.

Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir

Bókað:

1) 876. mál - raflínur að iðnaðarsvæðinu á Bakka Kl. 09:00
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Oddnýju Mjöll Arnardóttur professor við Háskóla Íslands og Ólaf Valsson (símafundur).

2) 679. mál - umgengni um nytjastofna sjávar o.fl. Kl. 10:30
Nefndin fjallaði að nýju um frumvarpið sem þó var afgreitt frá nefndinni á fundi hennar í gær og fékk nefndin á sinn fund Arnór Snæbjörnsson og Jóhann Guðmundsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

3) Önnur mál Kl. 11:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:00