63. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 150. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn miðvikudaginn 22. apríl 2020
kl. 08:30
Mætt:
Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 08:30Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 08:30
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 08:30
Inga Sæland (IngS), kl. 08:30
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 08:30
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 08:30
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 08:30
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 08:30
Smári McCarthy (SMc), kl. 08:30
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 08:30
Nefndarritarar:
Arnar Kári Axelsson
Björn Freyr Björnsson
Eyþór Benediktsson
Sigrún Rósa Björnsdóttir
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 08:30
Fundargerðir 51.-62. fundar voru samþykktar.
2) Kosning 1. varaformanns Kl. 08:30
Nefndin samþykkti tillögu Óla Björns Kárasonar formanns um að Jón Valdimar Steindórsson yrði 1. varaformaður.
3) 725. mál - fjárstuðningur til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru Kl. 08:35
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Guðrúnu Þorleifsdóttur og Gunnlaug Helgason frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
Nefndin samþykkti að málið yrði sent til umsagnar strax og því yrði vísað til nefndarinnar með fresti til 29. apríl.
4) 726. mál - breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru Kl. 09:30
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Helgu Jónsdóttur og Ingibjörgu Helgu Helgadóttur frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
Nefndin samþykkti að málið yrði sent til umsagnar strax og því yrði vísað til nefndarinnar með fresti til 29. apríl.
5) Önnur mál Kl. 10:15
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 10:20