5. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn þriðjudaginn 20. október 2020 kl. 18:00


Mætt:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 18:00
Jón Steindór Valdimarsson (JSV) 1. varaformaður, kl. 18:00
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 18:00
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 18:00
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 18:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 18:00
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 18:00
Smári McCarthy (SMc), kl. 18:00
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 18:00

Nefndarritarar:
Arnar Kári Axelsson
Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 18:00
Fundargerð 4. fundar var samþykkt.

2) 212. mál - tekjufallsstyrkir Kl. 18:00
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með fresti til föstudagsins 23. október. Þá var ákveðið að Óli Björn Kárason verði framsögumaður málsins.

Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Guðrúnu Þorleifsdóttur og Harald Steinþórsson frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.

3) 201. mál - fjárstuðningur til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru Kl. 18:20
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með fresti til föstudagsins 23. október. Þá var ákveðið að Óli Björn Kárason verði framsögumaður málsins.

Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Guðrúnu Þorleifsdóttur og Harald Steinþórsson frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.

4) Önnur mál Kl. 18:45
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 18:45