19. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 24. nóvember 2022
kl. 09:15
Mætt:
Guðrún Hafsteinsdóttir (GHaf) formaður, kl. 09:10Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 09:10
Ágúst Bjarni Garðarsson, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Guðbrandur Einarsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Jóhann Páll Jóhannsson og Orri Páll Jóhannsson voru fjarverandi.
Diljá Mist Einarsdóttir var fjarvarendi vegna þingstarfa erlendis.
Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:10
Dagskrárliðnum var frestað.
2) 328. mál - peningamarkaðssjóðir Kl. 09:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Elísabetu Júlíusdóttur frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
3) 381. mál - fjármálafyrirtæki og vátryggingastarfsemi Kl. 09:30
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Hjörleif Gíslason frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
4) 326. mál - skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða Kl. 09:40
Dagskrárliðnum var frestað.
5) 433. mál - sértryggð skuldabréf og fjármálafyrirtæki Kl. 09:40
Dagskrárliðnum var frestað.
6) 432. mál - breyting á ýmsum lögum um skatta og gjöld Kl. 09:40
Dagskrárliðnum var frestað.
7) Önnur mál Kl. 09:40
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 09:40