47. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, þriðjudaginn 12. mars 2024
kl. 09:10
Mætt:
Ágúst Bjarni Garðarsson (ÁBG) 1. varaformaður, kl. 09:10Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 09:10
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 09:30
Eva Sjöfn Helgadóttir (ESH), kl. 09:20
Guðbrandur Einarsson (GE), kl. 09:10
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 09:10
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:10
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:10
Oddný G. Harðardóttir tók þátt í fundinum gegngum fjarfundarbúnað.
Teitur Björn Einarsson boðaði forföll.
Nefndarritari: Þuríður Benediktsdóttir
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:10
Fundarðgerð 46. fundar var samþykkt.
2) 662. mál - Seðlabanki Íslands Kl. 09:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Ásgerði Þ. Hannesdóttur, Bjarna Gauk Sigurðsson og Hákon Stefánsson frá Blikk hugbúnaðarþjónustu.
Þá fékk nefndin á sinn fund Bergsveinn Sampsted frá Fjárflæði.
Jafnframt mætti á fund nefndarinnar Breki Karlsson frá Neytendasamtökunum.
Loks mætti á fund nefndarinnar Auður Alfa Ólafsdóttir frá ASÍ.
Nefndin samþykkti að óska eftir minnisblaði frá forsætisráðuneyti, sbr. 51. gr. þingskapa.
3) 705. mál - slit ógjaldfærra opinberra aðila Kl. 10:24
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar með þriggja vikna umsagnarfresti og að Diljá Mist Einarsdóttir verði framsögumaður málsins.
4) Önnur mál Kl. 10:24
Nefndin ræddi starfið framundan. Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 10:30