5. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 14. október 2013 kl. 09:31


Mættir:

Frosti Sigurjónsson (FSigurj) formaður, kl. 09:31
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) 2. varaformaður, kl. 09:31
Björt Ólafsdóttir (BjÓ) fyrir GStein, kl. 09:31
Ragnheiður Ríkharðsdóttir (RR), kl. 09:31
Steingrímur J. Sigfússon (SJS), kl. 09:31
Vilhjálmur Bjarnason (VilB), kl. 09:31

PHB var fjarverandi vegna þingstarfa erlendis.
ÁPÁ, JÞÓ og LínS voru fjarverandi.

Nefndarritarar:
Benedikt S. Benediktsson
Gautur Sturluson

Bókað:

1) Fundargerðir Kl. 09:31
Fyrir fundinn voru lögð drög að fundargerð síðasta fundar nefndarinnar. Gerðardrögin voru samþykkt.

2) 7. mál - mótun stefnu í gjaldmiðilsmálum Kl. 09:37
Lögð var fram tillaga um að óskað yrði skriflegra umsagna um málið. Tillagan var samþykkt.

3) 4. mál - stimpilgjald Kl. 09:40
Á fund nefndarinnar komu Guðrún Þorleifsdóttir, Ingibjörg Helga Helgadóttir, Margrét Ágústa Sigurðardóttir og Maríanna Jónasdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Gestirnir kynntu nefndinni efni þingmálsins og svöruðu spurningum nefndarmanna að því loknu.

4) 3. mál - ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014 Kl. 10:15
Á fund nefndarinnar komu Guðrún Þorleifsdóttir, Ingibjörg Helga Helgadóttir, Margrét Ágústa Sigurðardóttir og Maríanna Jónasdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Gestirnir kynntu nefndinni efni þingmálsins og svöruðu spurningum nefndarmanna að því loknu.

5) Önnur mál Kl. 11:02
Fleira var ekki gert á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 11:00