1. fundur
fjárlaganefndar á 146. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 7. desember 2016
kl. 10:30
Mættir:
Haraldur Benediktsson (HarB) formaður, kl. 10:30Oddný G. Harðardóttir (OH) 1. varaformaður, kl. 10:30
Theodóra S. Þorsteinsdóttir (ThÞ) 2. varaformaður, kl. 10:30
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 10:30
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 10:30
Guðlaugur Þór Þórðarson (GÞÞ), kl. 10:30
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 10:30
Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK), kl. 10:30
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV), kl. 10:30
Guðlaugur Þór Þórðarson, Unnur Brá Konráðsdóttir og Oddný G. Harðardóttir véku af fundi kl. 11:30.
Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson
Bókað:
1) Ný hugsun - nýtt verklag Kl. 10:30
Til fundar við nefndina komu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu Þórhallur Arason og Álfrún Tryggvadóttir. Gestirnir kynntu verklag laga nr. 123/2015 um opinber fjármál og lögðu fram kynningu á meginefni laganna. Þá svöruðu þeir spurningum nefndarmanna.
2) Verkefni og verklag fjárlaganefndar Kl. 11:00
Starfsmenn fjárlaganefndar kynntu verkefni og verklag fjárlaganefndar og svöruðu spurningum nefndarmanna um það efni.
3) Störf fastanefnda Kl. 11:54
Þessum dagskrárlið var frestað.
4) Önnur mál Kl. 11:55
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 11:55