33. fundur
fjárlaganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í færeyska herberginu, mánudaginn 16. desember 2019 kl. 14:18


Mættir:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 14:18
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 14:18
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 14:18
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 14:18
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) fyrir Steinunni Þóru Árnadóttur (SÞÁ), kl. 14:18
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 14:18
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 14:18
Páll Magnússon (PállM), kl. 14:18

Birgir Þórarinsson var fjarverandi.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 364. mál - fjáraukalög 2019 Kl. 14:18
Frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2019 var afgreitt án nefndarálits. Meiri hlutinn var samþykkur afgreiðslunni en hann skipa Willum Þór Þórsson, Haraldur Benediktsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Páll Magnússon og Njáll Trausti Friðbertsson. Minni hluti nefndarinnar sat hjá og mun ekki heldur leggja fram nefndarálit. Hann skipa Björn Leví Gunnarsson, Inga Sæland og Ágúst Ólafur Ágústsson.

2) Önnur mál Kl. 14:23
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 14:24
Fundargerð 32 fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 14:25