61. fundur
fjárlaganefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 8. maí 2014 kl. 13:30


Mættir:

Vigdís Hauksdóttir (VigH) formaður, kl. 13:30
Guðlaugur Þór Þórðarson (GÞÞ) 1. varaformaður, kl. 13:36
Oddný G. Harðardóttir (OH) 2. varaformaður, kl. 13:43
Bjarkey Gunnarsdóttir (BjG), kl. 13:37
Brynhildur Pétursdóttir (BP), kl. 13:30
Haraldur Benediktsson (HarB), kl. 13:30
Karl Garðarsson (KG), kl. 13:30
Valgerður Gunnarsdóttir (ValG), kl. 13:30

Helgi Hrafn Gunnarsson áheyrnarfulltrúi var fjarverandi. Haraldur Einarsson, varamaður Ásmundar Einars Daðasonar, var fjarverandi. Haraldur Benediktsson vék af fundi kl. 15:00. Brynhildur Pétursdóttir vék af fundi kl. 15:01 og Karl Garðarsson kl. 15:07.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 508. mál - opinber fjármál Kl. 13:31
Hagstofa Íslands: Ólafur Hjálmarsson. Rætt um frv. til laga um opinber fjármál.
Samband íslenskra Sveitarfélaga: Gunnlaugur Júlíusson og Guðjón Bragason. Lögðu fram umsögn um frv. til laga um opinber fjármál.

2) Önnur mál Kl. 15:12
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerðir fjárlaganefndar á 143. þingi Kl. 15:12
Fundargerðin var samþykkt af Vigdísi Hauksdóttur, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, Valgerði Gunnarsdóttur, Oddnýju G. Harðardóttur og Bjarkeyju Gunnarsdóttur.

Fundi slitið kl. 15:17