1. fundur
fjárlaganefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 15. september 2014
kl. 09:30
Mættir:
Vigdís Hauksdóttir (VigH) formaður, kl. 09:30Guðlaugur Þór Þórðarson (GÞÞ) 1. varaformaður, kl. 09:32
Oddný G. Harðardóttir (OH) 2. varaformaður, kl. 09:30
Brynhildur Pétursdóttir (BP), kl. 09:32
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ), kl. 09:30
Karl Garðarsson (KG), kl. 09:30
Valgerður Gunnarsdóttir (ValG), kl. 09:30
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) fyrir Ásmund Einar Daðason (ÁsmD), kl. 09:30
Ögmundur Jónasson (ÖJ) fyrir Bjarkeyju Gunnarsdóttur (BjG), kl. 09:30
Haraldur Benediktsson boðaði forföll. Brynhildur Pétursdóttir vék af fundi kl. 11:00 til að fara á fund þingflokksformanna. Valgerður Gunnarsdóttir vék af fundi kl. 11:19 til að fara á fund forsætisnefndar. Jón Þór Ólafsson vék af fundi kl. 11:22.
Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson
Bókað:
1) Önnur mál Kl. 09:40
Fundi var frestað um 10 mínútur.
Farið var yfir drög að skýrslu fjárlaganefndar um greiningu ráðuneytanna á veikleikum fjárlaga 2014.
2) 1. mál - fjárlög 2015 Kl. 10:35
Umhverfis- og auðlindaráðuneyti: Stefán Guðmundsson og Björgvin Valdimarsson. Farið var yfir frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2015.
3) Fundargerðir fjárlaganefndar á 144. þingi Kl. 11:28
Fundargerðina samþykktu Vigdís Hauksdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Oddný G. Harðardóttir, Karl Garðarsson, Willum Þór Þórsson og Ögmundur Jónasson.
Fundi slitið kl. 11:30