16. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 20. nóvember 2023 kl. 09:22


Mætt:

Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv) formaður, kl. 09:22
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) 1. varaformaður, kl. 09:22
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 09:22
Berglind Harpa Svavarsdóttir (BHS), kl. 09:22
Hildur Sverrisdóttir (HildS), kl. 10:02
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ), kl. 10:16

Ágúst Bjarni Garðarsson og Sigmar Guðmundsson voru fjarverandi.

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Hlé var gert á fundi milli kl. 10:03 - 10:05.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:02
Fundargerð 15. fundar var samþykkt.

2) Skýrsla Ríkisendurskoðunar - Matvælastofnun - Eftirlit með velferð búfjár - Stjórnsýsluúttekt Kl. 09:22
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Hrönn Ólínu Jörundsdóttur forstjóra og Viktor S. Pálsson frá Matvælastofnun.

3) 239. mál - Mannréttindastofnun Íslands Kl. 10:05
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Þórunni Pálínu Jónsdóttur og Önnu Lúðvíksdóttur frá Amnesty International og Trausta Fannar Valsson og Hafstein Þór Hauksson.

4) Könnun á kosningu varaþingmanns og kjörgengi Kl. 10:12
Nefndin kannaði tilkynningu landskjörstjórnar um kosningu og kjörgengi Rögnu Sigurðardóttur, sem hlaut kosningu sem 3. varaþingmaður á lista Samfylkingarinnar - jafnaðarmannaflokks Íslands í Reykjavíkurkjördæmi norður í alþingiskosningunum 25. september 2021. Tilkynningin var gefin út í samræmi við 113. gr. kosningalaga, nr. 112/2021. Ekki voru gerðar athugasemdir við tilkynninguna og var nefndin einhuga um að mæla með staðfestingu kosningar Rögnu Sigurðardóttur.

5) Önnur mál Kl. 10:13
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir lagði til að haldinn yrði opinn fundur með þáverandi fjármála- og efnahagsráðherra til að fara yfir þau gögn sem vörðuðu stöðu og hlutverk Bankasýslu ríkisins og lágu fyrir við undirbúning að sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka 22. mars 2022. Ásthildur Lóa Þórsdóttir og Þórunn Sveinbjarnardóttir tóku undir tillöguna. Var það samþykkt.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:54