3. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn miðvikudaginn 14. október 2020 kl. 15:02


Mætt:

Bergþór Ólason (BergÓ) formaður, kl. 15:02
Jón Gunnarsson (JónG) 1. varaformaður, kl. 15:09
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 15:02
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 15:02
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 15:02
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 15:02
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 15:02
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 15:03
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 15:02
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 15:02

Formaður vék Birni Leví Gunnarssyni, áheyrnarfulltrúa, af fundi kl. 16:01.

Kolbeinn Óttarsson Proppé vék af fundi kl. 16:45.

Nefndarritari:
Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 1. október sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 15:02
Fundargerð 2. fundar samþykkt.

2) Kynning á þingmálaskrá samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra á 151. löggjafarþingi Kl. 15:05
Á fund nefndarinnar mættu Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Ingveldur Sæmundsdóttir aðstoðarmaður ráðherra og Sigurbergur Björnsson frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Kynnti ráðherra þingmálaskrá sína og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) Breyting á lögum um loftslagsmál nr. 70/2012 (reglugerð o.fl.) Kl. 15:40
Nefndin ræddi málið og fjallaði um drög að frumvarpi.

4) Kynning á þingmálaskrá umhverfis- og auðlindaráðherra á 151. löggjafarþingi Kl. 16:05
Á fund nefndarinnar mættu Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra, Orri Páll Jóhannsson aðstoðarmaður ráðherra, Sigríður Auður Arnardóttir, Jón Geir Pétursson og Steinunn Fjóla Sigurðardóttir frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Kynnti ráðherra þingmálaskrá sína og svaraði spurningum nefndarmanna.

5) 9. mál - íslensk landshöfuðlén Kl. 16:50
Samþykkt var að senda málið til umsagnar með 2 vikna fresti.

6) 10. mál - leigubifreiðaakstur Kl. 16:55
Samþykkt var að senda málið til umsagnar með 3 vikna fresti.

7) Önnur mál Kl. 16:56
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 16:57