6. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 29. september 2022
kl. 09:06
Mætt:
Vilhjálmur Árnason (VilÁ) formaður, kl. 09:06Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG) 1. varaformaður, kl. 09:12
Bjarni Jónsson (BjarnJ) 2. varaformaður, kl. 09:06
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:06
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:06
Jakob Frímann Magnússon (JFM), kl. 09:06
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:06
Orri Páll Jóhannsson (OPJ), kl. 09:06
Ingibjörg Isaksen og Þórunn Sveinbjarnardóttir boðuðu forföll.
Bjarni Jónsson vék af fundi kl. 10:06.
Nefndarritari: Marta Mirjam Kristinsdóttir
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:06
Dagskrárlið frestað.
2) Skýrsla Ríkisendurskoðunar. Úrvinnslusjóður. Stjórnsýsluúttekt - skýrsla að beiðni Alþingis Kl. 09:06
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Sigurð Halldórsson frá Pure North.
3) 167. mál - leigubifreiðaakstur Kl. 10:05
Samþykkt var að senda málið til umsagnar með 2 vikna fresti.
Nefndin samþykkti að Halla Signý Kristjánsdóttir yrði framsögumaður málsins.
4) 16. mál - framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Suðurnesjalínu 2 Kl. 10:06
Samþykkt var að senda málið til umsagnar með 2 vikna fresti.
Nefndin samþykkti að Njáll Trausti Friðbertsson yrði framsögumaður málsins.
5) Önnur mál Kl. 10:08
Nefndin ræddi starfið framundan.
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 10:13