22. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 23. nóvember 2015
kl. 09:45
Mættir:
Katrín Júlíusdóttir (KaJúl) 1. varaformaður, kl. 09:45Róbert Marshall (RM), kl. 09:45
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 09:45
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:45
Svandís Svavarsdóttir vék af fundi kl. 10:30.
Höskuldur Þórhallsson, Haraldur Einarsson og Birgir Ármannsson höfðu boðað forföll.
Elín Hirst og Ásta Guðrún Helgadóttir voru fjarverandi.
Nefndarritari: Heimir Skarphéðinsson
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:45
Samþykktum fundargerða var frestað.
2) 101. mál - landsskipulagsstefna 2015--2026 Kl. 09:45
Á fund nefndarinnar komu Trausti Baldursson frá Náttúrufræðistofnun Íslands og Guðmundur Ingi Guðbrandsson frá Landvernd. Fjölluðu þeir bæði um tillögu til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu 2015-2026 og frumvarp til laga um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.
3) 133. mál - uppbygging innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum Kl. 09:45
Sjá fyrri dagskrárlið.
4) Önnur mál Kl. 10:52
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 10:52