23. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 25. nóvember 2015
kl. 09:05
Mættir:
Höskuldur Þórhallsson (HöskÞ) formaður, kl. 09:05Katrín Júlíusdóttir (KaJúl) 1. varaformaður, kl. 09:20
Haraldur Einarsson (HE) 2. varaformaður, kl. 09:05
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 10:15
Róbert Marshall (RM), kl. 09:17
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 09:15
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:20
Birgir Ármannsson vék af fundi kl. 12:05.
Elín Hirst og Ásta Guðrún Helgadóttir voru fjarverandi.
Nefndarritari: Heimir Skarphéðinsson
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 12:10
Fundargerðir 20. - 22. fundar voru samþykktar.
2) 101. mál - landsskipulagsstefna 2015--2026 Kl. 09:05
Á fund nefndarinnar kom Anna Dóra Sæþórsdóttir, dósent við Háskóla Íslands.
3) 133. mál - uppbygging innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum Kl. 09:05
Á fund nefndarinnar kom Anna Dóra Sæþórsdóttir, dósent við Háskóla Íslands.
4) Málefni Vaðlaheiðargangna Kl. 10:10
Á fund nefndarinnar komu Ágúst Torfi Hauksson og Valgeir Bergmann frá Vaðlaheiðargöngum hf.
5) Loftslagsráðstefnan í París Kl. 11:25
Á fundinn komu Hugi Ólafsson og Stefán Einarsson frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti og kynntu loftslagsráðstefnuna í París í desember.
6) Önnur mál Kl. 12:10
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 12:10