14. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 8. nóvember 2018
kl. 08:22
Mættir:
Bergþór Ólason (BergÓ) formaður, kl. 08:22Jón Gunnarsson (JónG) 1. varaformaður, kl. 08:22
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 08:22
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 08:22
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 08:22
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 08:22
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB), kl. 09:02
Vilhjálmur Árnason boðaði forföll.
Helga Vala Helgadóttir boðaði forföll.
Karl Gauti Hjaltason var fjarverandi.
Hanna Katrín Friðriksson vék af fundi kl. 08:54.
Nefndarritari: Inga Skarphéðinsdóttir
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 08:22
Fundargerðir 9.,10., 11., 12. og 13. fundar samþykktar.
2) 81. mál - vaktstöð siglinga Kl. 08:23
Framsögumaður, Ari Trausti Guðmundsson,kynnti drög að nefndaráliti.
Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.
Allir viðstaddir nefndarmenn standa að nefndaráliti með breytingartillögu.
Á fund nefndarinnar mættu Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Ragnhildur Hjaltadóttir frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og svöruðu spurningum nefndarmanna um skýrsluna.
4) 270. mál - póstþjónusta Kl. 09:10
Nefndin samþykkti að Líneik Anna Sævarsdóttir yrði framsögumaður málsins.
Samþykkt að senda til umsagnar með 3 vikna fresti.
5) 29. mál - náttúrustofur Kl. 09:13
Nefndin samþykkti að Líneik Anna Sævarsdóttir yrði framsögumaður málsins.
Samþykkt að senda til umsagnar með 2 vikna fresti.
6) 77. mál - breyting á ýmsum lögum vegna laga nr. 90/2018, um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga Kl. 09:14
Nefndin samþykkti að Rósa Björk Brynjólfsdóttir yrði framsögumaður málsins.
7) Önnur mál Kl. 09:15
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 09:16