6. fundur
utanríkismálanefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 9. nóvember 2022
kl. 09:30
Mætt:
Bjarni Jónsson (BjarnJ) formaður, kl. 09:30Njáll Trausti Friðbertsson (NTF) 1. varaformaður, kl. 09:30
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:46
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 09:35
Elín Anna Gísladóttir (EAG) fyrir Þorgerði K. Gunnarsdóttur (ÞKG), kl. 09:30
Gísli Rafn Ólafsson (GRÓ), kl. 09:30
Jakob Frímann Magnússon (JFM), kl. 09:30
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 09:30
Logi Einarsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson voru fjarverandi.
Nefndarritari: Stígur Stefánsson
1975. fundur utanríkismálanefndar.
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:31
Fundargerð 5. fundar var samþykkt.
2) Starfsemi borgaraþjónustu utanríkisráðuneytis Kl. 09:32
Gestir fundarins voru Anna Jóhannsdóttir, Helga Hrönn Karlsdóttir og Veturliði Þór Stefánsson frá utanríkisráðuneyti. Gestirnir kynntu starfsemi borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins og svöruðu spurningum nefndarmanna.
3) 91. mál - friðlýsing Íslands fyrir kjarnorkuvopnum og bann við umferð kjarnorkuknúinna farartækja Kl. 10:46
Bjarni Jónsson var valinn framsögumaður málsins. Ákveðið var að senda málið til umsagnar.
4) 86. mál - samningur Sameinuðu þjóðanna um bann við kjarnorkuvopnum Kl. 10:49
Bjarni Jónsson var valinn framsögumaður málsins. Ákveðið var að senda málið til umsagnar.
5) 3. mál - þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna við Evrópusambandið Kl. 10:49
Umfjöllun um málið var frestað.
6) Önnur mál Kl. 10:50
Rætt var um starfið framundan.
Fundi slitið kl. 11:00