12. fundur
utanríkismálanefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 7. desember 2022 kl. 09:10


Mætt:

Bjarni Jónsson (BjarnJ) formaður, kl. 09:10
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF) 1. varaformaður, kl. 09:10
Logi Einarsson (LE) 2. varaformaður, kl. 09:10
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 09:10
Gísli Rafn Ólafsson (GRÓ), kl. 09:10
Jakob Frímann Magnússon (JFM), kl. 09:42
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 09:10
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 09:10

Birgir Þórarinsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson voru fjarverandi.

Nefndarritari: Stígur Stefánsson

1981. fundur utanríkismálanefndar.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Fundargerð 11. fundar var samþykkt.

2) 487. mál - þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland Kl. 09:10
Gestir fundarins voru Guðmundur Hálfdánarson, Jón Ólafsson og Silja Bára Ómarsdóttir frá Háskóla Íslands. Gestirnir fóru yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Alþjóðastarf utanríkismálanefndar Kl. 10:47
Fjallað var stuttlega um alþjóðastarf nefndarinnar.

4) Fundur sameiginlegu EES-nefndarinnar 9. desember 2022 Kl. 10:50
Gestir voru Erna S. Hallgrímsdóttir og Alexandra Kjærnested Arnarsdóttir frá utanríkisráðuneyti, Elísabet Júlíusdóttir og Einar Gunnar Thoroddsen frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og Rakel Birna Þorsteinsdóttir frá menningar og viðskiptaráðuneyti. Gestirnir fóru yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

5) Önnur mál Kl. 11:05
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:05