34. fundur
utanríkismálanefndar á 141. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 31. janúar 2013 kl. 08:50


Mættir:

Árni Þór Sigurðsson (ÁÞS) formaður, kl. 08:50
Gunnar Bragi Sveinsson (GBS), kl. 08:50
Helgi Hjörvar (HHj), kl. 09:13
Mörður Árnason (MÁ), kl. 09:03
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 08:50
Þuríður Backman (ÞBack), kl. 08:50

Árni Páll Árnason, Bjarni Benediktsson og Ragnheiður E. Árnadóttir voru fjarverandi.

Nefndarritari: Stígur Stefánsson

Bókað:

1) Fundargerðir síðustu funda. Kl. 08:50
Fundargerðir funda nefndarinnar frá 17. og 19. desember og 9., 10., 14., 17., 22., 24. og 28. janúar voru lagðar fram til staðfestingar og verða birtar á vef Alþingis.

2) 465. mál - ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 200/2012 um breytingu á XX. viðauka við EES-samninginn Kl. 09:03
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið. Ákveðið var að Árni Þór Sigurðsson yrði framsögumaður málsins.

3) 62. mál - aukin áhrif Íslands á mótun og töku ákvarðana á vettvangi Evrópusamstarfs Kl. 09:03
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið.

4) 187. mál - viðurkenning á þjóðarmorði á Armenum Kl. 09:04
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið.

5) 100. mál - ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 115/2012 um breytingu á XX. viðauka við EES-samninginn Kl. 09:05
Á fund nefndarinnar komu Bergþór Magnússon og Jóhanna Bryndís Bjarnadóttir frá utanríkisráðuneyti, Kjartan Ingvarsson og Stefán Einarsson frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti, og Hólmfríður Sigurðardóttir og Ingvi Gunnarsson frá Orkuveitu Reykjavíkur.

Gestirnir fjölluðu um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

6) Önnur mál. Kl. 09:28
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:28