95. fundur
velferðarnefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 20. september 2016
kl. 11:00
Mættir:
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (SII) formaður, kl. 11:00Elsa Lára Arnardóttir (ELA) 1. varaformaður, kl. 11:09
Páll Valur Björnsson (PVB) 2. varaformaður, kl. 11:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 11:00
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 11:00
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir (ÓÞ), kl. 11:00
Ragnheiður Ríkharðsdóttir (RR), kl. 11:00
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 11:09
Steingrímur J. Sigfússon (SJS), kl. 11:11
Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK), kl. 11:00
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir vék af fundi kl. 11:55. Helgi Hrafn Gunnarsson vék af fundi kl. 11:59. Steingrímur J. Sigfússon vék af fundi kl. 12:26.
Nefndarritari: Kolbrún Birna Árdal
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 11:00
Fundargerð 94. fundar samþykkt.
2) 857. mál - almannatryggingar o.fl. Kl. 11:00
Á fundinn mættu Unnur Sverrisdóttir frá Vinnumálastofnun og Kristinn Tómasson frá Vinnueftirliti ríkisins og Ingibjörg Elíasdóttir frá Jafnréttisstofu var á símafundi. Fóru þau yfir umsagnir um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
Á fundinn mættu Rún Knútsdóttir og Bolli Þór Bollason frá velferðarráðuneytinu. Kynntu þau frumvarp til laga um breytingu á lögum um almennar íbúðir, nr. 52/2016 (staða stofnframlaga), sem fyrirhugað er að nefndin flytji.
4) Önnur mál Kl. 12:35
Samþykkt var að senda bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um málefni skuldara.
Þá var samþykkt að senda velferðarráðuneytinu minnisblað vegna 677. máls um frumvarp til lyfjalaga.
Fundi slitið kl. 12:40