89. fundur
velferðarnefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, laugardaginn 20. júní 2020
kl. 09:00
Mætt:
Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 09:08Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 09:08
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:08
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:08
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:08
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 09:08
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:08
Haraldur Benediktsson (HarB) fyrir Vilhjálm Árnason (VilÁ), kl. 09:54
Orri Páll Jóhannsson (OPJ) fyrir Lilju Rafneyju Magnúsdóttur (LRM), kl. 09:27
Nefndarritari: Sævar Bachmann Kjartansson
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:08
Frestað.
2) 926. mál - húsnæðismál Kl. 09:08
09:08 Á fund nefndarinnar mættu Ásthildur Lóa Þórsdóttir og Guðmundur Ásgeirsson frá Hagsmunasamtökum heimilanna. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
09:30 Á fund nefndarinnar mætti Þórunn Sveinbjarnardóttir frá Bandalagi háskólamanna. Fjallaði hún um málið og svaraði spurningum nefndarmanna.
3) 701. mál - sjúkratryggingar Kl. 09:50
Nefndin ræddi málið.
4) Önnur mál Kl. 10:00
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 10:00